Ibrahim Turay var kynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar undir lok félagaskiptagluggans síðasta sumar á sama tíma og þeir Damil Dankerlui og Alpha Conteh fengu félagaskipti í Stjörnuna. Turay skoraði í sigri gegn ÍA í Þungavigtarbikarnum og svo aftur gegn Keflavík í Lengjubikarnum.
Turay, sem er 25 ára, spilaði ekki með liðinu eftir komuna. Hann kom eftir tvískiptingu deildarinnar og var á bekknum gegn Val í efri hlutanum. Ástæðan fyrir því að hann kom ekki fyrr var sú að hann fékk ekki vegabréfsáritun.
Turay, sem er 25 ára, spilaði ekki með liðinu eftir komuna. Hann kom eftir tvískiptingu deildarinnar og var á bekknum gegn Val í efri hlutanum. Ástæðan fyrir því að hann kom ekki fyrr var sú að hann fékk ekki vegabréfsáritun.
„Hann kom í úrslitakeppninni og var á bekknum gegn Val. Það er ferli fyrir leikmenn frá Afríku að fá Visa og við lærðum það, höfðum ekki gert það áður (að fá leikmann sem var að spila þar). Við fengum hjálp frá öðrum félögum sem hafa meiri reynslu í því, ferlið er mjög sérstakt svo ekki sé meira sagt, langt og skrítið ferli. Það er ástæðan fyrir því að hann kom ekki fyrr," segir Jökull.
Turay á að baki landsleiki fyrir Síerra Leóne eins og Conteh. Ástæðan fyrir því að Conteh gat komið strax er sú að hann var að spila í Aserbaísjan og var kominn með vegabréfsáritun. Turay kom frá Bo Rangers í heimalandinu.
„Hann er rosalega skemmtilegur leikmaður, spilar einfalt og fer lítið fyrir honum. Hann gerir aðra betri. Ekkert sem gerir hann er eitthvað sturlað, aðrir líta betur út í kringum hann og hann er agressífur."
„Hann er núna farinn að skila sér framar í því sem við erum að gera, var búinn að vera meira aftar á vellinum. Honum er greinilega farið að líða aðeins betur inni á vellinum og er farinn að fljóta meira um. Hann er alhliða miðjumaður, góður í því að verja vörnina og góður í að sækja fram á við."
Gætu skoðað að fá inn framherja
Gustav Kjeldsen er að ganga í raðir Stjörnunnar, kemur eftir þrjú tímabil hjá Vestra og verður kynntur í dag. Jökull var spurður hvort að hann vildi fá einn enn fyrir mót til þess að hrista upp í hlutunum.
„Mér finnst ekkert þurfa að hrista upp í þessu. Núna finnst mér við vera kominn með breiddina í vörnina sem við þurfum. Eina sem ég hugsa núna er mögulega framherjastaðan. Ef Emil Atlason og Andri Rúnar Bjarnason haldast heilir þá hef ég engar áhyggjur, en frá því að Emil meiddist síðasta sumar þá hafa þeir ekki verið mikið heilir á sama tíma. Það er alveg eitthvað sem við hugsum út í, hvort það sé eitthvað sem við viljum - passa upp á að við séum með breidd í þeirri stöðu (með nýjum leikmanni) eða hvort við finnum hana innan úr hópnum. Við erum ekki með aðrar 'hreinar níur'."
„Við kannski skoðum þá stöðu upp á að vera við öllu búnir. Að öðru leyti erum við mjög ánægðir," segir Jökull.
Komnir hjá Stjörnunni
Birnir Snær Ingason frá KA
Darri Bergmann Gylfason frá Augnabliki
Gustav Kjeldsen frá Vestra
Farnir
Adolf Daði Birgisson í FH
Steven Caulker
Þorlákur Breki Baxter til Keflavíkur (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson til Keflavíkur
Andri Adolphsson hættur
Aron Dagur Birnuson í Þrótt R. (á láni)
Tristan Freyr Ingólfsson
Athugasemdir




