Liam Rosenior, stjóri Chelsea á Englandi, byrjar stjóratíð sína frábærlega og er hann þegar byrjaður að ná afrekum sem engum öðrum stjóra hafði tekist að ná í sögu félagsins.
Chelsea fór inn í hálfleikinn tveimur mörkum undir og ef horft er í söguna var ekki líklegt að Chelsea myndi koma til baka og vinna leikinn.
Aldrei í sögunni hafði Chelsea að vinna leik eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik, en alltaf er eitthvað fyrst.
Joao Pedro og Marc Cucurella jöfnuðu metin og þá skoraði Enzo Fernandez sigurmarkið í uppbótartíma.
Þetta var í 57. sinn sem Chelsea fer tveimur mörkum eða meira undir í hálfleik og loks tókst liðinu að vinna. Sögulegt afrek og áfram heldur liðið að standa sig undir Rosenior.
1 - Chelsea have won a Premier League game in which they've been 2+ goals behind at half time for the first time, with today the 57th occasion. Turnaround. pic.twitter.com/KLortxlUTO
— OptaJoe (@OptaJoe) January 31, 2026
Athugasemdir



