Lokamínúturnar í leik Chelsea og West Ham voru áhugaverðar svo vægt sé til orða tekið en tveir sáu gult og þá fór eitt rautt spjald á loft eftir að slagsmál brutust út við endalínuna.
Adama Traore, sem var að spila sinn fyrsta leik með Hömrunum, lenti saman við Marc Cucurella alveg upp við hornfána. Það endaði með því að Traore fleygði Cucurella í grasið og mætti Joao Pedro til þess að vernda hárprúða vin sinn.
Joao Pedro ýtti við Traore sem svaraði í sömu mynt áður en Jean-Clair Todibo mætti á svæðið.
Frakkinn tók Pedro kverkataki og uppskar rauða spjaldið fyrir það, en Pedro og Traore fengu báðir gula spjaldið.
Hægt er að sjá þessa atburðarás með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Sjáðu atvikið hér
Adama Traore I love you...that rat Cucurella deserves it#CHEWHU pic.twitter.com/gNGh6fL0Ez
— pat (@PatelBropodcast) January 31, 2026
Athugasemdir




