Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
   mið 03. júlí 2013 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Björn Daníel: Áhugavert að fara út ef það kemur upp
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Björn Daníel Sverrisson, leikmaður FH í Pepsi-deild karla, var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Fram í kvöld, en þá var einnig rætt um áhuga á honum erlendis frá.

,,Við byrjuðum ekkert sérstaklega vel í þessum leik, en þegar leið á leikinn þá fannst mér við vinna okkur inn í hann. Skoruðum fyrsta markið og þetta var klaufamark sem við fengum á okkur en sem betur fer náðum við sigurmarkinu," sagði Björn.

,,Þetta er ekkert í fyrsta sinn sem lið jafna á móti okkur og við höldum alltaf áfram og við þurftum þennan sigur í ljósi þess að KR hafi verið fimm stigum á undan okkur, svo þetta var mjög mikilvægt."

Frammistaða hans hefur ekki farið framhjá neinum í sumar, en mörg erlend lið eru að skoða hann. Hann er þó rólegur yfir þessu öllu saman og mun skoða hlutina ef tilboð berst í hann.

,,Ég hef ekki hugmynd um að það séu menn að horfa á mig, en það er gott að vita af því, þá vill maður gera betur en venjulega en það er fínt að það sé verið að skoða mann."

,,Ég bara veit það ekki, ef sá möguleiki kemur upp þá er vert að skoða það. Þegar maður er orðinn 23 ára, þá er áhugavert að fara út ef það kemur upp, en það verður skoðað ef það gerist,"
sagði hann að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner