Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 12:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliði Atletico ánægður eftir tapið: Heppnir að hann er spænskur
Pedri og Koke í baráttunni í gær.
Pedri og Koke í baráttunni í gær.
Mynd: EPA
Barcelona vann í gær 3-0 sigur á Atletico í seinni leik liðanna í undanúrslitum spænska konungsbikarsins. Það dugði ekki til því Atletico vann fyrri leikinn 4-0 og mætir annað hvort Real Sociedad eða Athletic Bilbao í úrslitum - en það einvígi klárast í kvöld.

Koke er fyrirliði Atletico Madrid og hann lofsamaði sérstaklega einn leikmann Barcelona eftir leikinn í gær.

„Barca er frábært lið. Ungu strákarnir eru fljúgandi. Pedri er einn sá besti, ef ekki bara sá besti í heiminum. Það er ekki auðvelt að koma á Nývang og spila," sagði Koke eftir leikinn í gær.

„Andrúmsloftið sem hefur verið búið til hér, það hefur áhrif. Sérstaklega í fyrri hálfleik, við hefðum getað drepið leikinn. Þetta er ánægjulegasta tapið á ferlinum."

„Pedri er vél. Við erum heppnir að hann er spænskur... hann er nútíð og framtíð Spánar. Hann mun færa Barca og spænska landsliðinu mikla ánægju. Fyrir utan að vera frábær í fótbolta er hann stórkostlegur gaur,"
sagði Koke eftir leikinn.

Athugasemdir
banner
banner