Daníel Tristan Guðjohnsen var fastamaður í sænska liðinu Malmö á síðustu leiktíð en með tilkomu nýs þjálfara hafa mínúturnar verið af skornum skammti. Hann segir í samtali við Sportsbladet að þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af.
Framherjinn spilaði flestar mínútur í sókninni ásamt Sead Haksabanovic.
Staðan er allt önnur núna eftir að Miguel Angel Ramirez tók við þjálfun liðsins.
Daníel hefur byrjað einn leik og fengið fáeinar mínútur af bekknum hjá Malmö undir Ramirez.
„Það verður alltaf samkeppni hjá félagi eins og Malmö og maður fær ekki alltaf að spila eins marga leiki og maður hefði vonast eftir. Ég er að glíma vel við þetta og leggja hart að mér á æfingum,“ sagði Daníel.
Malmö sér Daníel fyrir sér sem framtíðarleikmann í stærra liði í Evrópu, en til þess að taka næsta skref þarf hann að spila fleiri mínútur.
Ramirez hefur valið að nota Anders Christiansen í sóknarsinnuðu hlutverki í nokkrum leikjum sem hefur mikil áhrif á liðsvalið.
Daníel, sem er tvítugur, hefur ekki rætt við Ramirez um stöðuna.
„Við þurfum ekkert ræða þetta eitthvað sérstaklega. Við þurfum bara að halda áfram að æfa vel og síðan koma tækifærin í kjölfarið af því. Ég er ekkert stressaður yfir þessu,“ sagði Daníel í lokin.
Athugasemdir

