Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 13:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KSI kaupir hlut í Dag & Red
Mynd: Dag & Red
Enska Youtube-stjarnan KSI hefur keypt hlut í enska utandeildarfélaginu Dagenham and Redbridge.

KSI er dómari í Britain's Got Talent og hefur vakið athygli sem einn af Sidemen og áður fyrir FIFA myndbönd .

„Ég er maður sem geri það sem ég vil gera. Þú getur aldrei hætt að vilja meira. Þetta verður klárlega rússíbanareið, en ég vonast til að koma Dagenham and Redbridge aftur til dýrðardaga," segir KSI sem dreymir um að koma félaginu upp stigann í enska deildarkerfinu.

Dag & Red er í 13. sæti næst efstu utandeildarinnar, National League South. Andy Carroll er leikmaður liðsins.



Athugasemdir
banner