Portúgalska goðsögnin Cristiano Ronaldo er stödd í Sádi-Arabíu þessa stundina þrátt fyrir fregnir annars efnis.
Einkaþota hans flaug frá Ríad til Madrídar í gærkvöldi eftir sprengjuárásir í Sádi-Arabíu, en Ronaldo var ekki um borð. Taldar eru líkur á því að fjölskylda hans hafi hins vegar verið um borð.
Ronaldo er að vinna í endurheimt á æfingasvæði Al-Nassr eftir að hafa orðið fyrir smávægilegum meiðslum í síðasta leik.
Það ríkir mikil óvissa í Mið-Austurlöndunum þessa dagana enda er stríð hafið þar. Því hefur leikjum í helstu deildum á svæðinu og í vesturhluta Meistaradeildar Asíu verið frestað.
03.03.2026 11:04
Einkaþota Ronaldo flýgur frá Sádi-Arabíu
Athugasemdir




