Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 23:28
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Þægilegt fyrir Álafoss
Mynd: Boreal
Mynd: Hanna Sím
Álafoss 4 - 1 Afríka
1-0 Fróði Brooks Kristjánsson ('8)
2-0 Fróði Brooks Kristjánsson ('25)
3-0 Axel Þór Fannarsson ('37)
4-0 Rúben Filipe Vasques Narciso ('45)
4-1 Alessandro Dias Bandeira ('80)

Álafoss og Afríka kepptust í eina leik kvöldsins í C-deild Lengjubikars karla og skópu heimamenn þægilegan sigur í Mosfellsbæ.

Fróði Brooks Kristjánsson skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og var staðan 4-0 fyrir Álafossi í fyrri hálfleik.

Ekki bættust mörk við í síðari hálfleikinn fyrr en á lokakaflanum þegar Alessandro Dias Bandeira minnkaði muninn, en meira var ekki skorað.

Lokatölur 4-1 og er Álafoss með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir á meðan Afríka er án stiga.
Athugasemdir
banner