Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 20:15
Brynjar Ingi Erluson
Ótrúlegur viðsnúningur hjá GAIS - Róbert Frosti fékk nokkrar mínútur
Mynd: GAIS
Róbert Frosti Þorkelsson og félagar í GAIS unnu lygilegan 3-2 endurkomusigur á Sandevik í riðlakeppni sænska bikarsins á Jernvallen í Sandevik í kvöld.

Stjörnumaðurinn byrjaði á tréverkinu hjá GAIS sem lenti óvænt tveimur mörkum undir á þremur mínútum snemma í fyrri hálfleiknum.

Filip Beckman minnkaði muninn fyrir GAIS undir lok hálfleiksins áður en William Milovanovic jafnaði metin hálftíma fyrir leikslok.

Hinn 25 ára gamli Henry Sletsjoe skoraði sigurmarkið skömmu síðar fyrir GAIS.

Róbert Frosti kom inn af bekknum í uppbótartíma og hjálpaði liðinu að landa góðum sigri. Þetta var annar leikur hans í bikarnum á þessu ári.

GAIS er á toppnum í C-riðlinum með 6 stig, eins og Norrköping, en liðin munu eigast við eftir fimm daga í hreinum úrslitaleik um sæti í 8-liða úrslit keppninnar.
Athugasemdir
banner