Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 11:28
Kári Snorrason
Veðbankar hafa enga trú á Íslandi gegn heimsmeisturunum
PEI
Leikurinn hefst 18:00.
Leikurinn hefst 18:00.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið fær verðugt verkefni upp í hendurnar síðar í dag er liðið mætir ríkjandi heimsmeisturum í Spáni í fyrsta leik undankeppni HM kvenna sem fer fram í Brasilíu 2027.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður hann að sjálfsögðu í beinni textalýsingu á Fótbolta.net. Spilað verður á Estadio Municipal de Castalia í Castellon de la Plana, sem er skammt frá Valencia.

Lestu um leikinn: Spánn 0 -  0 Ísland

Veðbankar hafa litla trú á Íslandi í leik dagsins en veðmálasíðan Epicbet býður ekki upp á ávöxtun ef tippað er á þær spænsku. Þá er 17 í stuðul á jafntefli og heilir 30 í stuðul á íslenskan sigur.

Ísland fær jafnframt krefjandi verkefni næstkomandi laugardag en þá mætir liðið ríkjandi Evrópumeisturum Englands í Skírisskógi.

Athugasemdir
banner