Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Farke ósáttur: Hvað er VAR-herbergið að spá?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Daniel Farke þjálfari Leeds var mjög ósáttur með dómarateymið í VAR-herberginu eftir naumt tap á heimavelli í nýliðaslag gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Leeds var sterkara liðið en tókst ekki að skora mark. Sunderland gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í síðari hálfleik, en það reyndist eina marktilraun gestanna sem hæfði rammann.

Farke vildi fá dæmda vítaspyrnu snemma leiks þegar Pascal Struijk var rifinn niður af Luke O'Nien í hornspyrnu.

„Þetta er ekki einu sinni spurning, hvað er VAR-herbergið að spá í þessu atviki? Þetta gæti ekki verið augljósari vítaspyrna. Það er erfitt að skilja hvernig þetta fór framhjá þeim í VAR-herberginu," sagði Farke að leikslokum.

„Ég er nokkuð viss um að Stuart (Attwell), sem er alltaf mjög yfirvegaður og algjör hágæða dómari, hefði skipt um skoðun ef hann hefði fengið að sjá þetta aftur í skjánum. Hann hefði sagt 'þetta er allan daginn víti'.

„Við erum mjög svekktir að hafa tapað þessum leik. Við áttum næstum því 20 marktilraunir og fengum svo mikið af föstum leikatriðum án þess að gefa þeim tækifæri til að skapa sér færi. Samt töpuðum við einhvern veginn, andstæðingarnir okkar eru líklega í búningsklefanum núna að reyna að átta sig á því hvernig þeir unnu þennan leik."


Farke er ósáttur með þessa stóru ákvörðun dómarateymisins en telur ekki að hún hafi orsakað tapið.

„Við spiluðum frábærlega allt þar til kom að því að setja boltann í netið. Við sýndum ekki nægilega mikil gæði fyrir framan markið og það er mjög mikilvægt að skora mörk í fótbolta. Slæm nýting á góðum sóknarstöðum og færum er ástæðan fyrir því að við töpuðum. Það er mjög svekkjandi og pirrandi að þurfa að samþykkja þessi úrslit."

Farke var einnig spurður út í vítaspyrnudóminn sem réði að lokum úrslitum, þegar Ethan Ampadu rak olnbogann viljandi í boltann innan eigin vítateigs.

„Fótbolti er stundum svona. Við vorum við fullkomna stjórn og leikvangurinn var að springa þegar við gefum frá okkur vítaspyrnu. Þeir voru ekki einu sinni í færi en þeir fengu víti eftir ósjálfráð viðbrögð frá mínum besta og mikilvægasta leikmanni. Þetta var svo mikil óþarfi, en þetta hefur verið skrifað í skýin."

Leeds er í neðri hluta úrvalsdeildarinnar, sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Sunderland er um miðja deild, níu stigum fyrir ofan Leeds og með möguleika á að berjast um evrópusæti.

   03.03.2026 21:40
England: Ampadu gaf ótrúlega vítaspyrnu

Athugasemdir
banner