Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   mið 04. mars 2026 06:02
Ívan Guðjón Baldursson
Jérémy Jacquet fer í aðgerð á öxl
Mynd: Rennes
Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet var keyptur til Liverpool í lok janúargluggans en mun ekki skipta yfir í enska boltann fyrr en næsta sumar.

Jacquet er tvítugur miðvörður sem hefur verið lykilmaður í liði Rennes á tímabilinu og vildi félagið alls ekki missa hann úr sínum röðum á miðju tímabili.

Rennes samþykkti því 60 milljóna punda kauptilboð frá Liverpool gegn því að fá að nota Jacquet út tímabilið.

Jacquet meiddist þó á öxl skömmu eftir að hafa skrifað undir samning við Liverpool og þarf að gangast undir á aðgerð á næstu dögum.

Rennes er búið að staðfesta að Jacquet sé á leið í aðgerð, en ekki er greint frá því hvort að leikmaðurinn geti spilað fótbolta aftur á tímabilinu.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner