Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 03. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Yrði ljótasta lið sögunnar til að vinna titilinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arsenal náði aftur fimm stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með því að vinna 2-1 sigur á Chelsea í leik þar sem hornspyrnurnar voru í aðalhlutverki, en spekingurinn Chris Sutton er með mjög sterkar skoðanir á leikstíl Lundúnaliðsins.

Sutton, sem starfar sem spekingur hjá BBC er ekki ýkja hrifinn af því hvernig fótboltinn er að þróast.

Lið í ensku úrvalsdeildinni eru farin að nýta föstu leikatriðin meira og Arsenal sérstaklega, en ekkert lið hefur skorað fleiri mörk úr föstum leikatroðum en Arsenal.

Bæði mörk liðsins gegn Chelsea komu eftir hornspyrnur. Erfitt er að verjast hornspyrnutaktík Arsenal sem hefur nú skorað sextán mörk úr hornspyrnum í deildinni á þessari leiktíð.

Arsenal stefnir hraðbyr að fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 22 ár, en Sutton segir að hann yrði sá ljótasti í sögunni.

„Enn og aftur skorar Arsenal eftir fast leikatriði. Ég held að þeir muni vinna þetta. Ef þeir koma titlinum yfir línuna yrði þetta þá ljótasta lið sögunnar til þess að vinna hann? Frammistaðan var að minnsta kosti ekki til staðar í leiknum,“ sagði Sutton á BBC.

John Cross hjá Mirror segir Sutton vera frábæran sérfræðing með mikla ástríðu fyrir leiknum, en er alls ekki sammála. Hann segir fótboltann í ensku deildinni breytast reglulega og oft 'trenda' nýjar aðferðir.

Mörg lið eru farin að nýta föstu leikatriðin, en Arsenal fengið mesta athygli fyrir það.

Um helgina skoraði Liverpool þrjú mörk eftir hornspyrnur í fyrri hálfleik og önnur lið að nýta sér löng innköst, svipuð og þau sem íslenska karlalandsliðið notfærði sér undir Lars Lagerbäck og Heimi Hallgrímssyni.

Þessar leikaðferðir koma í bylgjum eins og Pep Guardiola hefur kannski sýnt með því að breyta reglulega leikstíl Manchester City.

Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal, blandaði sér í umræðuna er hann var spurður út í aðferðir Mikel Arteta. Þar sagði hann upplegg Arteta koma sér á óvart.

„Þegar þú ert í efsta sæti Meistaradeildarinnar og ensku úrvalsdeildarinnar þá býstu við því að Arsenal sæki meira fram á við,“ sagði Vieira.

En af hverju að breyta einhverju sem virkar? Liðin þurfa að aðlagast og eru mörg félög farin að ráða menn til þess að halda utan um föstu leikatriðin, en með með misjöfnum árangri.
Athugasemdir
banner
banner