Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   þri 03. mars 2026 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tilnefnd besta íþróttakona heims sama dag og hún missir af Íslandi
Eimskip
Aitana Bonmatí.
Aitana Bonmatí.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Aitana Bonmatí er að margra mati besta fótboltakona heims. Hún hefur allavega unnið Ballon d'Or verðlaunin þrjú ár í röð.

Bonmati er miðjumaður Barcelona og spilar einnig fyrir spænska landsliðið þar sem hún er í lykilhlutverki.

Spánn mætir Íslandi í fyrsta leik í undankeppni HM í kvöld en Bonmati verður þar ekki með þar sem hún fótbrotnaði á æfingu landsliðsins í nóvember.

Bonmatí er mikilvægasti leikmaður Barcelona sem er sigursælasta lið Evrópu síðustu árin. Á síðustu leiktíð var hún valin besti leikmaður Meistaradeildarinnar er Barcelona komst alla leið í úrslit og þá vann hún spænsku deildina með liðinu.

Bonmatí var í dag tilnefnd sem íþróttakona ársins hjá Laureus sem eru mjög virt verðlaun. Hún hlaut verðlaunin árið 2024 og var einnig tilnefnd í fyrra.
Slapp
banner