Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 13:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aga- og úrskurðarnefnd mun fjalla um skýrslu Helga Mikaels
Helgi Mikael Jónasson ákvað að leikurinn skildi halda áfram.
Helgi Mikael Jónasson ákvað að leikurinn skildi halda áfram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skjáskjot úr útsendingu Livey frá leiknum.
Skjáskjot úr útsendingu Livey frá leiknum.
Mynd: Livey/Skjáskot
Svona leit tekk-VÖLLURINN í Árbæ út þegar hefja átti seinni hálfleik.
Svona leit tekk-VÖLLURINN í Árbæ út þegar hefja átti seinni hálfleik.
Mynd: Kristján Óli Sigurðsson
Birkir Sveinsson.
Birkir Sveinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á föstudag var flautaði dómarinn Helgi Mikael Jónasson leik Fylkis og FH af þar sem Hafnfirðingar mættu ekki til leiks í seinni hálfleikinn. Aðstæður á föstudag voru ekki frábærar, kalt og ofankoma á lokakafla fyrri hálfleiks, en svo stytti upp.

FH-ingar töldu aðstæður ekki öruggar og tjáðu dómaranum það, óskaðu eftir því að leikurinn yrði flautaður af en fengu ekki þá ósk uppfyllta. Helgi Mikael fór út á völl með Árbæingm, flautaði seinni hálfleikinn á og svo strax í kjölfarið flautaði hann til leiksloka.

Heimir Guðjóns í útvarpsþættinum
„Fyrsti hálftíminn var allt í lagi. Svo byrjaði að snjóa helvíti hressilega og Helgi Mikael tók ákvörðun um að klára fyrri hálfleikinn. Ég var sammála því en FH-ingarnir ekki. Svo var völlurinn skafinn í hálfleik og Helgi Mikael sagði okkur að hálfleikurinn yrði 25 mínútur. Það var fínt veður en hann tók það fram að ef það kæmi aftur snjókoma þá myndi hann blása leikinn af. FH-ingarnir mættu ekki í seinni hálfleikinn og ástæðan... Davíð (Þór Viðarsson) sagði að aðstæður hefðu verið hættulegar en mér fannst það ekki," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, í viðtali í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag. Heimir segir að Helgi hafi tekið fram að ef aftur færi að snjóa þá myndi hann flauta leikinn af.

Jói Kalli í viðtali við Vísi
Jóhannes Karl Guðjónsson, sem tók við af Heimi sem þjálfari FH í vetur, var til viðtals á Vísi á laugardag.

„Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður að mínu mati sem hefðu getað haft alvarlegar afleiðingar fyrir leikmenn. Mér fannst rosalega skrýtið að dómaratríóið skyldi ekki stöðva leikinn að minnsta kosti í fyrri hálfleik, því það snjóaði mjög mikið og mér fannst augljóst að leikmenn réðu ekki lengur við það sem þeir voru að reyna að gera. Þeir stóðu ekki í lappirnar, snjórinn límdist við takkaskóna og menn voru að fljúga á hausinn," sagði Jói Kalli og benti á að leikmenn væru á sinni ábyrgð og heilsa þeirra skipti hann gríðarlega miklu máli. FH hafði í aðdraganda leiksins reynt að fá leiknum frestað, en Jói Kalli segir að Árbæingar hefðu ekki viljað hlusta á þá beiðni FH.

„Ég tók þessa ákvörðun út frá okkar hagsmunum, út frá heilsu leikmanna, en ekki almannaáliti. Það er stutt í mót og ég er nokkuð viss um að dómarinn hefði flautað þennan leik af ef þetta hefði verið leikur í mótinu," sagði Jói Kalli í viðtalinu við Vísi sem má nálgast hér.

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fer yfir skýrsluna
Fótbolti.net ræddi í dag við Birki Sveinsson, mótastjóra KSÍ, um málið.

„Skýrsla dómarans verður til meðhöndlunar hjá aga- og úrskurðarnefnd og svo kemur einhver niðurstaða," segir Birkir. Venjulega hittist aga- og úrskurðarnefnd KSÍ á þriðjudögum.

Það er því möguleiki á því að leikurinn verði kláraður?

„Ég get nú ekki ímyndað mér það, en maður veit aldrei. Aga- og úrskurðarnefnd mun fjalla um þetta mál. FH ákvað að mæta ekki til leiks í seinni hálfleik þannig ég get ekki séð hvernig það (að leikurinn verði kláraður) eigi að gerast."

Eru einhver fordæmi fyrir því að svona leikur verði kláraður síðar?

„Ég man bara ekki eftir svona tilfelli. Leikir, þar sem veður verður til þess að dómarinn tekur þá ákvörðun um að stöðva leikinn og fresta honum, hafa verið kláraðir seinna. En dómarinn þurfti ekki að taka neina ákvörðun þarna, liðið bara mætti ekki."

Á föstudag var gervigrasvöllurinn í Árbænum hreinsaður í hálfleik. Í hálfleik tilkynnti Helgi Mikael liðunum að hálfleikurinn yrði lengri en þær hefðbundnu 15 mínútur sem venjulega eru á milli hálfleikja. Man Birkir eftir slíkum tilvikum?

„Ég er ekki með dæmin en það hefur margoft gerst erlendis og hér að leikir hafi verið stöðvaðir, t.d. vegna þess að það eru þrumur og eldingar og annað, lið hafa verið kölluð inn og koma svo út aftur og klára leikin. Líka vegna þess að það hefur þurft að moka völlinn."

Birkir hefur séð skýrsluna en vill ekki tjá sig um innihald hennar.
Athugasemdir
banner