Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður Levadiakos og íslenska landsliðsins, var í annað sinn í liði vikunnar í grísku úrvalsdeildinni hjá SofaScore.
Miðvörðurinn spilaði allan leikinn í þriggja manna varnarlínu í 1-0 tapi gegn Kifisia á útivelli.
Hann átti mjög góðan leik, bæði varnarlega og sóknarlega, en hann var nálægt því að jafna metin í síðari hálfleik eftir hornspyrnu.
SofaScore gefur Herði 8,2 í einkunn fyrir frammistöðuna, en hann er sá eini úr Levadiakos í liði umferðarinnar. Panathinaikos og PAOK eiga þrjá fulltrúa, tveir úr OFI Crete og einn frá Atromitos og Olympiakos.
Þetta er í annað sinn sem hann er í liði vikunnar á tímabilinu, en Hjöur Hermannsson hjá Volos hefur einu sinni verið í liðinu og sömuleiðis Sverrir Ingi Ingason, sem spilar með Panathinaikos.
Síðast var Hörður í liðinu í fimmtándu umferð, Hjörtur í níundu umferð og Sverrir í áttundu umferð.
Hörður og Sverrir eru í harðri baráttu um 4. sæti deildarinnar sem gefur þáttökurétt í meistarariðilinn og tryggir Evrópusæti á meðan Hjörtur er að berjast með Volos um að komast í Sambandsdeildarriðilinn.
Athugasemdir



