Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 12:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Margar mun stærri þjóðir geta öfundað Ísland
Daníel Tristan Guðjohnsen.
Daníel Tristan Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Daníel Tristan Guðjohnsen er einn efnilegasti leikmaður Íslands um þessar mundir.

Daníel er leikmaður Malmö og íslenska landsliðsins en þrátt fyrir að vera bara tvítugur hefur hann skorað níu mörk í 40 leikjum fyrir aðallið Malmö.

Jacek Kulig sem rekur X-reikninginn vinsæla Football Talent Scout velur Daníel Tristan sem leikmann vikunnar hjá sér þessa vikuna.

„Daníel Guðjohnsen er einn mest spennandi leikmaður Skandinavíu," segir hann og bætir við:

„Guðjohnsen-bræðurnir, (Orri Steinn) Óskarsson, (Viktor Bjarki) Daðason, (Hilmir Rafn) Mikaelsson - margar mun stærri þjóðir geta öfundað hæfileika og breidd Íslendinga þegar kemur að níustöðunni."

Kulig segir hægt að bera saman leikstíl Daníel Tristans við Harry Kane, landsliðsfyrirliða Englands.


Athugasemdir
banner
banner