Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Földu ummæli þar sem kallað er eftir því að stjórinn verði rekinn
Scott Parker.
Scott Parker.
Mynd: EPA
Burnley ákvað að 'fela' ummæli á X samfélagsmiðlinum þar sem kallað er eftir því að Scott Parker verði rekinn.

Á heimasvæði sínu á X birti Burnley stutt myndband af ummælum Parker eftir 2-0 tap gegn Everton í gær.

Margir stuðningsmenn Burnley voru reiðir eftir frammistöðuna og tapið og kölluðu eftir stjóraskiptum. Samfélagsmiðlastjóri Burnley ákvað að nýta valkost á miðlinum og 'fela' þau ummæli.

Það er þó hægt að sjá þá ummæli sem hafa verið falin og Daily Mail birtir þau á vefsíðu sinni.

Burnley er í 19. sæti með 19 stig, átta stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner