Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 21:52
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM: Frænkur okkar byrja á sigrum
PEI
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Öllum leikjum kvöldsins er lokið í A-deild í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM, þar sem nokkrar stórþjóðir mættu til leiks.

Noregur, Danmörk og Svíþjóð unnu sína leiki gegn sterkum andstæðingum. Danir lögðu Serbíu á heimavelli á meðan Svíar sigruðu á Ítalíu og þær norsku höfðu betur í Austurríki.

Þýskaland skoraði fimm mörk í stórsigri gegn Slóveníu og vann England stórsigur á Úkraínu í íslenska riðlinum. Ísland er í rosalegum riðli sem inniheldur heimsmeistara Spánar og Evrópumeistara Englands, sem skoruðu sex sinnum gegn Úkraínu.

Pólland og Holland skildu jöfn og þá vann stórveldi Frakklands endurkomusigur á Írlandi. Melvine Malard var hetjan þar með tvennu í síðari hálfleiknum.

Austurríki 0 - 1 Noregur

Danmörk 3 - 1 Serbía

Ítalía 0 - 1 Svíþjóð

Úkraína 1 - 6 England

Þýskaland 5 - 0 Slóvenía

Pólland 2 - 2 Holland

Írland 1 - 2 Frakkland

Spánn 3 - 0 Ísland

Athugasemdir
banner