Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
banner
   þri 03. mars 2026 23:18
Ívan Guðjón Baldursson
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Eimskip
Mynd: KSÍ
Mynd: EPA
Cecilía Rán Rúnarsdóttir var án efa besti leikmaður íslenska landsliðsins í 3-0 tapi gegn heimsmeisturum Spánar fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Spánn 3 -  0 Ísland

Cecilía varði nokkrum sinnum meistaralega og gerði mjög vel að halda Íslandi inni í leiknum í tæpa klukkustund.

Spánverjar reyndust að lokum alltof sterkir andstæðingar og verðskulduðu fyllilega 3-0 sigur, sem hefði getað vera töluvert stærri ef ekki fyrir markvörslur Cecilíu og ótal klúður Spánverja.

„Það er svolítið skrýtið að segja en mér fannst við standa okkur ótrúlega vel í kvöld. Við vorum óheppnar að fá á okkur fyrsta markið á erfiðum tímapunkti og svo komu hin tvö bara í seinni hálfleik," sagði Cecilía að leikslokum.

„Mér fannst þetta ótrúlega skemmtileg reynsla, þetta er í fyrsta sinn sem ég spila við Spán og þetta eru með bestu leikmönnum í heimi. Mér fannst ótrúlega gaman að bera mig saman við bestu leikmenn í heimi og ég naut þess allavega að spila í kvöld þó að úrslitin hafi ekki verið okkur í hag."

Þjóðirnar mættust í undankeppni fyrir HM 2027 og heimsækir Ísland evrópumeistara Englands í næstu umferð.

„Í seinni hálfleik áttum við mjög góða spilkafla og þorðum að halda í boltann, við getum tekið það sjálfstraust með okkur í næsta leik. Það verður líka erfiður leikur þar sem við munum ekki halda mikið í boltann en svo verðum við bara að nýta föstu leikatriðin, við vorum næstum því búin að skora í dag og svo bara reyna að halda markinu hreinu.

„Þetta eru leikmenn í heimsklassa þannig það verður erfitt að verjast gegn þeim. Við verðum að passa upp á langskotin hjá þeim, þær elska að skjóta utan vítateigs."

Slapp