Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikið: Vini Jr reifst við varamarkvörð Getafe og þjálfarann
Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Vinicius Junior heldur áfram að stela fyrirsögnunum á Spáni, en hann lenti í hörkurifrildi við Allan Nyom, varamarkvörð Getafe, eftir 1-0 tapið á Santiago Bernabeu í gær.

Vinicius er einn umtalaðasti leikmaður heims. Hann hefur orðið fyrir barðinu á rasistum síðustu ár og barist fyrir því að bola kynþáttafordómum úr fótbolta.

Nú síðast sakaði hann argentínska leikmanninn Gianluca Prestianni um að hafa beitt sig kynþáttaníði er Real Madrid mætti Benfica í Meistaradeildinni.

Það mál er enn til rannsóknar, en Prestianni þótti afar grunsamlegur í því atviki með því að lyfta treyjunni yfir varir sínar er hann lét einhver orð falla í garð Vini.

Ef horft er á karakter Vini þá er alveg óhætt að segja að hann sé umdeildur. Hann á það til að vera með stuttan þráð og sauð greinilega á honum eftir tapið gegn Getafe, en myndband er í dreifingu af honum rífast við Nyom, varamarkvörð Getafe og Jose Bordelás, þjálfara liðsins.

Eder Militao, sem lék ekki með Real Madrid í leiknum, sást þá einnig í hörkurifrildi eftir leikinn en myndbönd af þessu má sjá hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner