Brasilíski vængmaðurinn Rodrygo er með slitið krossband og verður frá hann frá keppni næstu sjö mánuði í hið minnsta og missir hann því af komandi heimsmeistaramóti.
Marca greinir frá tíðindunum og segir leikmanninn hafa farið í læknisskoðun í morgun eftir að hafa meiðst í tapi Real Madrid gegn Getafe í gær.
Marca greinir frá tíðindunum og segir leikmanninn hafa farið í læknisskoðun í morgun eftir að hafa meiðst í tapi Real Madrid gegn Getafe í gær.
Rodrygo á að baki 37 leiki með brasilíska landsliðinu og hefur skorað í þeim níu mörk.
Brasilía verður með Skotlandi, Haítí og Marokkó í riðli á HM í sumar. Carlo Ancelotti er þjálfari Brasilíu en hann stýrði jafnframt Rodrygo hjá Real Madrid í fjögur ár.
Athugasemdir


