Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 02. mars 2026 16:21
Elvar Geir Magnússon
Leeds lýsir yfir vonbrigðum
Mynd: EPA
Leeds United segir það vonbrigði að áhorfendur hafi baulað á meðan hlé var gert á leik liðsins gegn Manchester City svo að múslimskir leikmenn gætu brotið föstu og fengið sér næringu.

City er með ansi marga múslima í leikmannahópi sínum en nú er Ramadan í gangi og þeir fasta á meðan sólin er á lofti.

Hléið varði í um eina mínútu en greinilegt baul heyrðist á meðan.

Leeds vildi í fyrstu ekkert tjá sig um baulið þegar fjölmiðlar leituðu eftir því en margir stuðningsmenn létu þá óánægju sína í ljós með að engin viðbrögð kæmu frá félaginu.

Félagið sendi þá frá sér yfirlýsingu þar sem það lýsir yfir vonbrigðum sínum með viðbrögð frá hluta áhorfenda.
Slapp