Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   þri 03. mars 2026 11:24
Elvar Geir Magnússon
Veikindi herja á Newcastle - Woltemade líklega ekki með gegn Man Utd
Nick Woltemade.
Nick Woltemade.
Mynd: EPA
„Það eru augljóslega veikindi að smitast innan hópsins," segir Eddie Howe, stjóri Newcastle. Liðið mætir Manchester United annað kvöld.

Jacob Ramsey þurfti að fara af velli í hálfleik í 3-2 tapinu gegn Everton þar sem hann var svo slappur.

„Ramsey er mættur aftur til æfinga svo hann var fljótur að jafna sig. En nú er Nick Woltemade veikur. Við höfum ekki séð hann síðustu daga. Sjáum hvort hann nái að vera með í leiknum, við gefum honum tækifæri til þess."

Ánægður með Woltemade
Woltemade, sem kom frá Stuttgart fyrir tímabilið, er með sjö mörk í 25 úrvalsdeildarleikjum en sóknarmaðurinn hefur fengið sinn skammt af gagnrýni, hann fékk að heyra það á samfélagsmiðlum eftir tapið gegn Everton.

„Nick er að standa sig vel, ég er ekki að fella of stóra dóma út af einni frammistöðu. Ég fylgist ekki með umræðunni á samfélagsmiðlum, ég vil frekar byggja skoðanir mínir á því sem ég sé með eigin augum. Auðvitað þarf hann að vinna í ýmsum hlutum og við aðstoðum hann við það en ég er ánægður með hann."

Livramento færist nær
Bakvörðurinn Tino Livramento færist nær en hann hefur ekkert spilað síðan snemma árs vegna meiðsla aftan í læri.

„Þessi leikur kemur mögulega of snemma fyrir hann. Hann færist þó nær og nær. Við viljum fá hann til baka sem fyrst og hann er kominn á lokastig í endurhæfingu sinni," segir Livramento.

Newcastle hefur sogast niður í þrettánda sæti en Manchester United er á góðu skriði og komið upp í þriðja sætið.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner