Ekkert er meira í umræðunni í enska boltanum en föst leikatriði. Þau hafa heldur betur verið áberandi á þessu tímabili en hlutfallslega hafa ekki komið eins mörg mörk úr föstum leikatriðum síðan 2009-10.
Athygli vakti þegar Arne Slot, stjóri Liverpool, sagði að leikirnir í enska boltanum væru orðnir leiðinlegri því áherslan á föst leikatriði væri svo mikil.
Pep Guardiola, kollegi hans hjá City, lagði orð í belg á fréttamannafundi. Hann segist skilja ummæli Slot og að vissu leyti sé hann sammála honum.

„Mikilvægi fastra leikatriða er orðið meira. Þú getur setið og kvartað en sem þjálfari þá þarf maður að aðlagast. Það er hluti af leiknum," segir Guardiola.
„Fótboltinn hefur verið spilaður á svo mismunandi hátt síðan hann var fundinn upp. Hvernig hann er spilaður á Englandi er öðruvísi en á Spáni eða Ítalíu. Hver stjóri spilar á sinn hátt. Hversu leiðinlegt væri það ef allir stjórar myndu spila með sama hætti."
„Ég skil ummæli Arne Slot fullkomlega og að vissu leyti er ég sammála honum."
Athugasemdir