Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Slot steinhissa á niðurstöðunni á Old Trafford
Arne Slot og Mo Salah
Arne Slot og Mo Salah
Mynd: EPA
Slot furðaði sig á rauða spjaldinu á Lacroix
Slot furðaði sig á rauða spjaldinu á Lacroix
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Englandsmeistara Liverpool, var hissa yfir ákvörðun sem átti sér stað í leik Manchester United og Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Franski miðvörðurinn Maxence Lacroix sá rauða spjaldið fyrir að rífa í öxl Matheus Cunha. Brotið hófst fyrir utan teig en Cunha lét sig falla þegar hann var kominn inn í teiginn og ákvað VAR að dæma vítaspyrnu og rautt spjald.



Þessi ákvörðun kom Slot verulega á óvart en hann minnist þess þegar Marc Guehi slapp við sömu afleiðingar í leik Liverpool gegn Manchester City í síðasta mánuði.

„Eini munurinn er sá að Guehi togar í treyjuna á Salah á meðan Lacroix leggur höndina á öxlina á Cunha. Þegar ég sá þetta, vitandi hvað gerðist fyrir okkur, um að VAR hafi verið að skoða hvort þetta væri innan teigs og möguleg vítaspyrna, en að þeir myndu aldrei gefa rautt fyrir þetta. Það kom mér því verulega á óvart að þetta hafi verið rautt spjald,“ sagði Slot.

Hann sagði að það hafa komið mörg mistök í kringum VAR á tímabilinu en hans mat er að það er mikið ósamræmi á milli ákvarðana sem teljast líka mistök.

„Við verðum að fullvissa okkur um að treysta ekki á þessar ákvarðanir. Við verðum að spila okkar leik og vera ótrúlega góðir. Stundum fara ákvarðanirnar gegn þér og þá verður þú að sjá til þess að þessar ákvarðanir muni ekki særa þig,“ sagði Slot.


Athugasemdir
banner
banner