Heimild: Campo
Hinn ungi og efnilegi Tómas Óli Kristjánsson skrifaði fyrir helgi undir framlengingu á samningi sínum við danska félagið AGF til ársins 2030.
Tómas, sem varð átján ára síðastliðinn föstudag, er sóknarsinnaður miðjumaður og hefur hann komið við sögu í sjö leikjum á tímabilinu hjá toppliðinu. AGF er með fjögurra stiga forystu á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar nú þegar tvískiptingin er að ganga í garð.
Danski miðillinn Campo ræddi við Garðbæinginn efnilega fyrir helgi.
Tómas, sem varð átján ára síðastliðinn föstudag, er sóknarsinnaður miðjumaður og hefur hann komið við sögu í sjö leikjum á tímabilinu hjá toppliðinu. AGF er með fjögurra stiga forystu á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar nú þegar tvískiptingin er að ganga í garð.
Danski miðillinn Campo ræddi við Garðbæinginn efnilega fyrir helgi.
„Það er mikill munur á því að spila með U19 liði og í efstu deild, því hver einasti leikur skiptir máli. Það eru líka miklu fleiri áhorfendur og mér líkar það vel.
Mér hefur einfaldlega verið sagt að gera mitt þegar ég stíg inn á völlinn, alveg eins og ég gerði með U19 liðinu. Þeir treysta hæfileikum mínum og það gefur mér aukið sjálfstraust,“ segir Tómas. Hann ræðir jafnframt við blaðamann um stóra karaktera innan klefans og segir þá hafa hjálpað sér mikið.
Lofsunginn af þjálfaranum og lykilmanni
Jakob Poulsen, þjálfari AGF, ræddi jafnframt við miðilinn um unga Íslendinginn og hrósaði hann Tómasi í hástert.
„Þetta hefur verið ákveðið ferðalag fyrir Tomma og hann lék sinn fyrsta leik í haust. Hann er góður leikmaður sem getur valdið miklum usla. Tommi byrjaði tímabilið afar vel og var óheppinn að meiðast í leik í æfingaferðinni, því hann hafði lagt mikið á sig og staðið sig vel.
Það var lítið bakslag. Það er alveg ljóst að hann er gríðarlega hæfileikaríkur leikmaður. Hann er mjög ungur en getur engu að síður gert hluti sem mun nýtast okkur.“
Kevin Yakob, einn af lykilmönnum liðsins, fór jafnframt fögrum orðum um Tómas.
„Tommi er ekki sá sem lætur mikið fyrir sér fara í klefanum en á vellinum er hann mjög öruggur. Það er eins og hann hefur verið heima hjá sér frá fyrsta degi. Hann er óhræddur við að gera mistök og það er augljóst að hér er á ferðinni afar góður leikmaður með mikla hæfileika sem hefur nægan tíma til að bæta sig.“
Aðspurður hvort hann sjái framtíðarstjörnu í Tómasi Kristjánssyni svarar hann játandi: „Já, klárlega. Fyrir ungan leikmann snýst þetta um að vinna hart og af aga. Mér finnst hann hafa þá eiginleika og hugarfar hans er á réttum stað. Ég held að hann eigi mjög bjarta framtíð fyrir sér.“
Athugasemdir



