Lazio og Atalanta eigast við í undanúrslitum ítalska bikarsins í kvöld og er þetta í annað sinn sem liðin mætast á rétt rúmum tveggja vikna kafla.
Liðin áttust við á Ólympíuleikvanginum í Róm á Valentínusardaginn og skóp Atalanta dýrmætan sigur í evrópubaráttunni í Serie A.
Heimamenn verða því í hefndarhug í kvöld en þetta er aðeins fyrri viðureign liðanna. Seinni leikurinn verður leikinn í Bergamó í seinni hluta apríl.
Sigurvegarinn mætir annað hvort Inter eða Como í úrslitaleiknum, en þau gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna sem fór fram við Como-vatn í gærkvöldi.
Leikur kvöldsins
20:00 Lazio - Atalanta
Athugasemdir



