Daryl Janmaat, fyrrum landsliðsmaður Hollands, hefur opnað sig um fíkniefnavanda sinn en hann varð háður kókaíni eftir ferilinn. Hann segir að vandamálið hafi eyðilagt hjónaband sitt.
Janmaat spilaði meðal annars með Newcastle og Watford á ferlinum en hápunkturinn hjá bakverðinum kom á HM 2014 þar sem Holland fór í undanúrslit en tapaði í vítakeppni gegn Argentínu.
Janmaat spilaði meðal annars með Newcastle og Watford á ferlinum en hápunkturinn hjá bakverðinum kom á HM 2014 þar sem Holland fór í undanúrslit en tapaði í vítakeppni gegn Argentínu.
Hann lauk ferlinum með ADO Den Haag, sama félagi og hann hóf feril sinn, árið 2022.
Ári seinna kom í fréttirnar að hann hefði fundist undir áhrifum fíkniefna í vafasömu hverfi í Hollandi og svo var greint frá því að hann hefði farið í meðferð í Suður-Afríku.
Skapað eymd og volæði
Í viðtali við hollenska blaðið AD segist Janmaat hafa átt erfitt með daglegt líf eftir að hann lagði skóna á hilluna. Þá segir hann að fíknin hafi eyðilagt hjónaband sitt.
„Ég vil ekki fara út í smáatriði, ég á börn sem heyra og lesa ýmislegt. Kókaínfíkn mín hefur skapað eymd og volæði. Þetta hefur verið erfitt, ég fór að ljúga að fólki sem ég elska og særði marga," segir Janmaat sem er 36 ára en lagði skóna á hilluna eftir erfið hnémeiðsli.
Janmaat reynir að losa sig við fíkniefnadjöfulinn og hefur opnað sína eigin líkamsræktarstöð.
Athugasemdir



