Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 10:00
Kári Snorrason
Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento
Powerade
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Möguleg endurkoma Darwin Nunez til Englands, Manchester City hefur áhuga á Tino Livramento og þýski hafsentinn Nico Schlotterbeck er eftirsóttur. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.

Chelsea hefur áhuga á að sækja Úrúgvæmanninn Darwin Nunez (26) í sínar raðir. Newcastle hefur jafnframt áhuga á Nunez en hann var tekinn úr deildarhóp Al Hilal eftir komu Karim Benzema. (Chronicle Live)

Manchester City er reiðubúið að greiða 70 milljónir punda fyrir Tino Livramento (23) frá Newcastle sem yrði heimsmet fyrir bakvörð.(Teamtalk)

Samningur þýska hafsentsins Nico Schlotterbeck, 26, rennur út sumarið 2027. Hann hefur verið orðaður við Liverpool og er sagður eitt helsta skotmark Real Madrid í sumar. (Mundo Deportivo)

Sunderland og West Ham hafa augastað á mexíkanska framherjanum Santiago Gimenez, 24. AC Milan gæti verið tilbúið að láta hann fara. (AS)

Altay Bayindir (27) markvörður Manchester United, er talinn á förum í sumar. Besiktas kemur til greina sem næsti áfangastaður tyrkneska landsliðsmannsins. (Football Insider).

Marcus Rashford, 28, hefur samþykkt að lækka laun sín og afsala sér bónusgreiðslum til að auðvelda því að lánssamningur hans frá Manchester United til Barcelona verði gerður varanlegur. (Teamtalk)

Crystal Palace hyggst hafna öllum tilboðum í Dean Henderson, 28, frá Tottenham og öðrum félögum. Enski markvörðurinn hefur verið lykilmaður undir stjórn Oliver Glasner. (Football Insider).

Juventus er reiðubúið að selja hollenska miðjumanninn Teun Koopmeiners, 28, en krefst að minnsta kosti 30 milljóna evra fyrir hann. Sá hollenski hefur verið orðaður við Galatasaray og Roma. (Tuttosport).

Nottingham Forest ætlar ekki að nýta ákvæði upp á 35 milljónir evra til að gera lánssamning ítalska framherjans Lorenzo Lucca frá Napoli varanlegan. (Football Italia).
Athugasemdir
banner
banner