Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tölvuleikjakölthetjan sem stelpurnar okkar þurfa að passa vel
PEI
Claudia Pina.
Claudia Pina.
Mynd: EPA
Claudia Pina er eitt stærsta nafnið í kvennaboltanum í dag og frammistaða hennar síðustu mánuði styður það fyllilega.

Hún hefur verið í lykilhlutverki hjá Barcelona á leiktíðinni og skorað 15 mörk í spænsku deildinni.

Það sem gerir Pina sérstaklega hættulega er fjölhæfnin. Hún getur spilað á kantinum eða innar á vellinum, er fljót að finna skotfæri og hikar ekki við að taka áhættu. Hún er dugleg að hreyfa sig á milli lína, finnur pláss þar sem varnarlínur halda að það sé ekkert rými og er með nákvæm og kraftmikil skot.

Athyglin sem hún fær nær þó út fyrir raunverulega fótboltavöllinn. Í EA Sports FC, sem var áður FIFA, samfélaginu er hún einn vinsælasti leikmaðurinn. Hún hefur orðið eins konar költhetja þar sem tölvuleikjapersóna hennar þykir nánast vera svindlgóð.

Hún er líka stórkostlegur leikmaður í raunheimi og er svo sannarlega ein af þeim sem þarf að hafa góðar gætur á þegar Ísland mætir Spáni í undankeppni HM í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner