Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   mið 04. mars 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Slot: Sama gamla sagan
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arne Slot, þjálfari Englandsmeistara Liverpool, var vonsvikinn eftir óvænt tap gegn botnliði Wolves í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Úlfarnir áttu góðan leik og unnu með marki í uppbótartíma, en Liverpool er það lið deildarinnar sem hefur tapað flestum leikjum í uppbótartíma það sem af er tímabils.

Þetta er fimmti tapleikur Liverpool í uppbótartíma á deildartímabilinu, sem er met í sögu úrvalsdeildarinnar. Aldrei áður hefur einu liði tekist að tapa fimm leikjum eða meira með mörkum í uppbótartíma á sama tímabili.

„Þetta eru slæm úrslit. Við vorum langt frá því að vera nægilega góðir í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var betri. Við sýndum meiri ákefð og sköpuðum góð færi en svo skoruðu þeir úr sínu fyrsta marktækifæri," sagði Slot eftir tapið. „Við brugðumst vel við opnunarmarkinu með því að skjóta í stöngina og svo jafnaði Mo Salah skömmu síðar. Eftir það fengum við tvö góð færi til að skora sigurmarkið."

Brasilíski miðjumaðurinn André gerði sigurmark Úlfanna á 94. mínútu með skoti sem fór af varnarmanni og endaði í netinu. Hann skoraði eftir að liðsfélagar hans höfðu unnið boltann hátt uppi á vellinum eftir misheppnaða hreinsun frá Alisson Becker sem var undir pressu.

„Að lokum fengum við mark á okkur með skoti sem breytti um stefnu af varnarmanni. Það er varla hægt að kalla þetta marktækifæri en boltinn rataði í netið. Við gáfum þeim varla færi á okkur en samt skoruðu þeir tvö mörk. Við sköpuðum talsvert meira heldur en þeir en skoruðum bara eitt mark og þess vegna er niðurstaðan 2-1 tap.

„Við höfum verið að tapa alltof mikið af stigum og þá sérstaklega í uppbótartíma."


Þetta tap kemur sér illa fyrir meistaradeildarvonir Liverpool þar sem liðið situr í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar sem stendur, með 48 stig eftir 29 umferðir.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við töpum stigum gegn fallbaráttuliðum en við erum heldur ekki fyrsta liðið sem er að tapa stigum hérna. Í síðustu viku var það Aston Villa og þar á undan var það Arsenal. Við vorum að keppa við lið sem er í miklu stuði þessa dagana, við vorum betra liðið á vellinum en töpuðum samt. Þetta er sama gamla sagan.

„Væntingarnar mínar hafa breyst nokkrum sinnum í gegnum tímabilið útaf því að ég bjóst við meiru frá okkur. Þetta er annað bakslag fyrir okkur, við erum ekki að gera sjálfum okkur neina greiða."


Liverpool spilar aftur á Molineux leikvanginum á föstudaginn þegar lærlingar Slot heimsækja Úlfana í 16-liða úrslitum FA bikarsins.

„Það er jákvætt, strákarnir hafa þá eitthvað til að sanna á föstudaginn."

   03.03.2026 22:21
England: Liverpool tapaði fyrir Wolves

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner