Ejub Purisevic er hættur störfum hjá FH en þar starfaði hann sem afreksstjóri knattspyrnudeildarinnar og þjálfaði efnilega leikmenn félagsins
„Knattspyrnudeild FH þakkar Ejub kærlega fyrir frábært starf þau þrjú ár sem hann var hjá deildinni og óskar honum góðs gengis í framtíðinni," segir í tilkynningu FH.
Ekki er sagt hver ástæðan er fyrir því að leiðir skilja en sagt að komist hafi verið að samkomulagi um starfslok.

Ejub náði mögnuðum árangri sem þjálfari Víkings í Ólafsvík og starfaði hjá Stjörnunni áður en hann fór í Hafnarfjörðinn.
Hann hefur verið orðaður við þjálfarastarf U21 landsliðsins eftir að Ólafur Ingi Skúlason lét af störfum þar en Ólafur Kristjánsson og Lúðvík Gunnarsson eru þar bráðabirgðaþjálfarar út yfirstandandi undankeppni.
Athugasemdir