Pisa 0 - 1 Bologna
0-1 Jens Odgaard ('90 )
0-1 Jens Odgaard ('90 )
Ítalska liðið Bologna vann dramatískan 1-0 sigur á Pisa með draumamarki á lokamínútunum er liðin áttust við í Seríu A á Ítalíu í kvöld.
Það var lítið að frétta fyrri hlutann af fyrri hálfleiknum, en Bologna tók yfirhöndina þegar leið á leikinn og fékk Santiago Castro tvö gullin tækifæri til að koma gestunum yfir. Fyrra skorið fór yfir markið og það síðara hafnaði í tréverkinu.
Pisa, sem var án sigurs síðan í nóvember, ógnaði lítið og kom ekki fyrsta hættulega færi liðsins fyrr en í síðari hálfleiknum er Stefano Moreo átti skalla sem Lukasz Skorupski varði.
Skorupski varð síðan aðra tilraun frá varamanninum Gabriele Piccinini. Pisa að finna taktinn en þá voru þeir slegnir niður með draumamarki undir lok leiks.
Danski leikmaðurinn Jens Odgaard fékk boltann fyrir utan teig og þrumaði honum rakleiðis í samskeytin af um það bil 25 metra færi og stal sigrinum. Þetta var fimmti sigur Bologna í röð í öllum keppnum sem er að komast á skrið á hárréttu augnabliki.
Stórbrotið mark og mikilvægt fyrir Bologna sem er í 8, sæti með 39 stig og enn í baráttu um Evrópusæti en Pisa í næst neðsta sæti með 15 stig, níu stigum frá öruggu sæti þegar ellefu leikir eru eftir.
Jens Odgaard. Que maravilha de gol. pic.twitter.com/ow1PX9BMWw
— leo (@leoczb) March 2, 2026
Athugasemdir



