Seinni undanúrslitaleikur Barcelona og Atlético Madríd í spænska konungsbikarnum er leikinn á Nou Camp í kvöld, en heimamenn í Barcelona þurfa kraftaverk til að komast í úrslit.
Atlético slátraði Barcelona 4-0 í Madríd þar sem varnarmaðurinn Eric Garcia sá rautt spjald og gerði sjálfsmark.
Sóknartríóið Antoine Griezmann, Ademola Lookman og Julian Alvarez skoruðu hin mörkin.
Mun Barcelona eiga einhverja ótrúlegustu endurkomu sögunnar eða mun Atlético sigla þessu sannfærandi heim? Það kemur í ljós í kvöld!
Leikur dagsins:
20:00 Barcelona - Atletico Madrid
Athugasemdir


