Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 13:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fer frá Val í norska boltann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marius Lundemö er samkvæmt heimildum TV2 í Noregi að gera tveggja ára samning við Stabæk.

Lundemo er nokkuð hávaxinn varnarsinnaður miðjumaður sem samdi við Val fyrir síðasta tímabil og skoraði eitt mark í 17 leikjum í Bestu deildinni. Meiðsli komu í veg fyrir að norski miðjumaðurinn spilaði meira á síðasta tímabili, en meiðsli höfðu sett svip sinn á síðustu ár hans á ferlinum fyrir komuna til Íslands.

Lundemo verður 32 ára í næsta mánuði. Hann þekkir vel til í Noregi því hann hefur leikið með Bærum, Lilleström og vann titla með Rosenborg þar í landi. Hnan hefur einnig verið hjá APOEL Nicosia í Kýpur. Árið 2014 lék hann tvo leiki fyrir U21 landslið Noregs.

Stabæk endaði í 11. sæti norsku B-deildarinnar í fyrra og var í vetur orðað við markvörðinn Guy Smit sem samdi í kjölfarið við Njarðvík.


Athugasemdir
banner
banner