Fótboltadeild Hauka auglýsir eftir verkefna- og viðburðastjóra á skrifstofu deildarinnar sem er nýtt starf í þeirri uppbyggingu sem á sér stað á Ásvöllum.
Tilkynning Hauka:
Barna- og unglingastarfið er í miklum vexti ásamt báðum meistaraflokkum sem og vennslafélögum. Starfið spannar allt frá almennri þjónustu í daglegum rekstri, viðburðatengd verkefni, undirbúningur í tengslum við heimaleiki og verkefnum tengd tekjuöflun deildarinnar ásamt ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum á líflegum og skemmtilegum vinnustað.
Gagnvart hæfniskröfum þá er reynsla af slíkum störfum eða sambærilegum verkefnum æskileg. Lögð er áhersla á góða samskiptahæfni og gott skipulag með sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum. Þá gildir að vilji og jákvæður hugur sé ávallt til staðar og í algjöru fyrirrúmi. Sveigjanleiki er nauðsynlegur enda er um að ræða lifandi og mjög fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er eins, en ávallt sótt til sigurs!
Um knattspyrnuaðstöðuna á Ásvöllum er það að segja að hún er framúrskarandi og með því besta sem gerist á Íslandi. Frábær aðalvöllur með gervigrasi, mjög góður æfinga- og keppnisvöllur yfir sumarið með náttúrulegu grasi. Loks er það svo ný og stór knattspyrnuhöll, Knatthús Hauka, sem rúmar allt sem knattspyrnufólk getur óskað sér – Það er sannarlega algjör topp knattspyrnuaðstaða á Ásvöllum!
Umsóknarfrestur er til 10. mars og skulu umsóknir sendar á [email protected]
Athugasemdir




