Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
banner
   þri 03. mars 2026 14:11
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Heimir: Trúi ekki að menn haldi áfram að sætta sig við meðalmennsku í Garðabænum
Stjarnan endaði í þriðja sæti í fyrra.
Stjarnan endaði í þriðja sæti í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Stjarnan verður að fara gera eitthvað, í guðanna bænum. Þetta er búið að vera það sama í þrjú ár.“
„Stjarnan verður að fara gera eitthvað, í guðanna bænum. Þetta er búið að vera það sama í þrjú ár.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson sparaði ekki stóru orðin þegar hann ræddi um Stjörnuna í útvarpsþætti Fótbolta.net síðastliðinn laugardag.

Hann segir liðið ekki geta sætt sig við meðalmennsku enn eitt árið og miðað gæði hópsins ættu Garðbæingar að geta veitt Víkingum góða keppni.

Stjarnan endaði í 3. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og fengu Garðbæingar mikinn liðsstyrk eftir tímabil í Birni Snæ Ingassyni. Ásamt Birni hefur Gustav Kjeldsen jafnframt bæst við leikmannahóp Stjörnunnar.

Heimir var spurður hvaða lið hann teldi líklegast til að blanda sér í titilbaráttuna og stóð hann ekki á svörum.

„Stjarnan verður að fara gera eitthvað, í guðanna bænum. Þetta er búið að vera það sama í þrjú ár. Miðað við mannskapinn sem er kominn þarna þá er þetta frábært lið.

Ég held að Jökull þurfi að skila einhverju í sumar. Mér finnst þetta búið að einkennast af óstöðugleika. Þegar hann vinnur leiki spilar hann á sama liðinu, þá gerir hann það vel. Miðað við mannskapinn neita ég að trúa öðru en að Stjarnan geti veitt Víkingum einhverja keppni.“

„En svo getum við líka sagt það að um leið og Stjarnan fór að tala um titilinn þegar 22 leikir voru búnir þá fór allt í skrúfuna. Hvað fengu þeir? Þrjú stig af 15 mögulegum. Það þarf eitthvað að fara gerast þarna. Ég trúi ekki að menn í Garðabæ sætti sig við það að þetta verði áfram meðalmennska miðað við hvað er lagt í þetta,“
sagði Heimir að lokum.

Útvarpsþáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu streymisveitum. Umræðan um Stjörnuna hefst eftir rúmar nítíu mínútur.
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Athugasemdir
banner
banner