Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er búinn að velja byrjunarlið íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Spáni en leikur liðanna hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma og fer fram ytra. Leikurinn er liður í undankeppni HM 2027.
Það er flest mjög hefðbundið í liðsvali Þorsteins en það vekur athygli að Ída Marín Hermannsdóttir er í byrjunarliðinu. Hún byrjar í dag sinn fyrsta keppnisleik með landsliðinu og spilar sinn fyrsta A-landsleik frá árinu 2022. Á vef UEFA er Ídu stillt upp á þriggja manna miðju með Hildi Antonsdóttur og Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur.

Lestu um leikinn: Spánn 1 - 0 Ísland
Byrjunarliðið
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
14. Hlín Eiríksdóttir
16. Hildur Antonsdóttir
17. Ída Marín Hermannsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
Athugasemdir