Grindavík/Njarðvík 2 - 2 Stjarnan
1-0 Maci Nicole Teater ('3)
2-0 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('38)
2-1 Andrea Mist Pálsdóttir ('44)
2-2 Telma Steindórsdóttir ('94)
1-0 Maci Nicole Teater ('3)
2-0 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('38)
2-1 Andrea Mist Pálsdóttir ('44)
2-2 Telma Steindórsdóttir ('94)
Sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur mætti Stjörnunni í Nettóhöllinni í eina leik kvöldsins í Lengjubikar kvenna og náði Maci Teater forystunni fyrir heimakonur snemma leiks.
Tinna Hrönn Einarsdóttir tvöfaldaði svo forystuna fyrir þessa nýliða Bestu deildarinnar, áður en Andrea Mist Pálsdóttir minnkaði muninn skömmu fyrir leikhlé.
Staðan var því 2-1 í hálfleik og var síðari hálfleikurinn mjög spennandi, þar sem ekkert mark leit dagsins ljós fyrr en seint í uppbótartíma.
Telma Steindórsdóttir var þar á ferðinni og náði að bjarga mikilvægu stigi fyrir Stjörnuna.
Stjarnan er nefnilega þremur stigum fyrir ofan Grindavík/Njarðvík, með 10 stig eftir 5 umferðir. Garðbæingar tróna á toppi riðilsins með 17 mörk í plús.
Grindavík/Njarðvík er í öðru sæti með 7 stig eftir 4 umferðir og á eftir að spila við Þrótt í lokaumferðinni. Liðið er þó aðeins með 4 mörk í plús og á því ekki möguleika á að ná Stjörnunni án þess að vinna með 13 marka mun.
Þróttur er eina liðið sem hefur möguleika á að hirða toppsætið af Stjörnunni, þrátt fyrir 5-0 tap í innbyrðisviðureigninni.
Þróttur er með 6 stig og tvo leiki til góða, gegn Grindavík/Njarðvík og botnliði FHL.
Athugasemdir




