Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 04. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Titilbaráttuliðin gegn Nottingham og Brighton
Stórleikir á Villa Park og St. James' Park
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er mikið fjör í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar bæði titilbaráttuliðin mæta til leiks.

Topplið Arsenal heimsækir Brighton á sama tíma og Manchester City fær Nottingham Forest í heimsókn, en fimm stig skilja á milli liðanna í titilbaráttunni og á Man City leik til góða.

Arsenal er búið að vinna tvo leiki í röð gegn nágrannaliðum sínum Chelsea og Tottenham eftir að hafa misstigið sig með að gera jafntefli við Brentford og Wolves í umferðunum þar á undan.

Lærlingar Pep Guardiola í liði City eru hins vegar með fjóra sigra í röð í deildinni og virðast nánast óstöðvandi um þessar mundir.

Þá eru einnig tveir stórleikir á dagskrá í kvöld þegar Aston Villa og Newcastle eiga heimaleiki gegn Chelsea og Manchester United.

Aston Villa, Chelsea og Man Utd eru í harðri meistaradeildarbaráttu á meðan Newcastle er í neðri hluta deildarinnar á miklu vonbrigðatímabili og er búið að tapa fjórum af síðustu fimm deildarleikjum sínum.

Að lokum eigast Fulham og West Ham við í Lundúnaslag. Fulham getur reynt að blanda sér í evrópubaráttuna með sigri á meðan Hamrarnir eru í harðri fallbaráttu, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Leikir kvöldsins
19:30 Aston Villa - Chelsea
19:30 Man City - Nott. Forest
19:30 Brighton - Arsenal
19:30 Fulham - West Ham
20:15 Newcastle - Man Utd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner