Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe verður ekki með Real Madrid næstu vikurnar vegna meiðsla á hné en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Real Madrid nefnir ekki tímann sem Mbappe verður frá en talað er um tognun á liðbandi sem þýðir líklega að hann verði frá í nokkrar vikur og jafnvel næsta mánuðinn.
„Eftir þær rannsóknir sem voru gerðar á leikmanni okkar, Kylian Mbappe, af frönskum læknissérfræðingum og undir eftirliti læknateymis Real Madrid hefur komið í ljós tognun á vinstrá hné og að nú sé mikilvægt að fylgja eftir viðeigandi meðferð áður en beðið er eftir framvindu mála,“ segir í yfirlýsingu Real Madrid.
Mbappe, sem er langmarkahæsti leikmaður Real Madrid á tímabilinu, verður því líklega ekki með liðnu gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og missir af mörgum mikilvægum leikjum í titilbaráttunni á Spáni.
Parte médico de Mbappé.
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) March 2, 2026
Athugasemdir



