Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   mán 02. mars 2026 15:30
Elvar Geir Magnússon
Slot segir að enska deildin sé orðin leiðinlegri
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, segir að það sé ekki lengur gaman að horfa á flesta leiki í ensku úrvalsdeildinni og að „fótboltahjartað“ í sér ekki ekki hrifið af því hve mikil áhersla sé lögð á föst leikatriði.

Af öllum mörkum sem hafa verið skoruð í deildinni á þessu tímabili hafa 27,5% verið úr föstum leikatriðum (vítaspyrnur ekki teknar með) sem er næsthæsta hlutfall síðan 2009-10.

Skilvirkni Arsenal úr föstum leikatriðum hefur spilað lykilþátt í titilbaráttu liðsins. Öll þrjú mörk Liverpool í fyrri hálfleik í 5-2 sigrinum gegn West Ham á laugardag komu úr hornspyrnum

„Maður þarf að sætta sig við þetta. Þetta virðist aðallega vera hér í ensku úrvalsdeildinni, í öðrum deildum er ekki sama áhersla á föst leikatriði," segir Slot.

„Er ég hrifinn af þessu? Fótboltahjartað í mér er það ekki. Mér finnst flestir leikir sem ég horfi á í ensku úrvalsdeildinni ekki skemmtilegir áhorfs en þeir eru áhugaverðir því það er svo mikil samkeppni. Það er það sem gerir þessa deild svona skemmtilega, það er svo mikil samkeppni. Allir geta unnið alla."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner