Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 22:05
Ívan Guðjón Baldursson
Spænski bikarinn: Stórsigur Barcelona nægði ekki
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Barcelona 3 - 0 Atletico Madrid (3-4 samanlagt)
1-0 Marc Bernal ('29 )
2-0 Raphinha ('45+5 , víti)
3-0 Marc Bernal ('72 )

Barcelona tók á móti Atlético Madrid í seinni leik liðanna í undanúrslitum spænska Konungsbikarsins.

Lærlingar Hansi Flick í liði Barcelona töpuðu fyrri viðureigninni stórt í Madríd og kvörtuðu sáran undan dómgæslunni. Þeir mættu því í seinni leikinn á heimavelli fjórum mörkum undir.

Börsungar voru rosalegir í fyrri hálfleiknum og sköpuðu hvert færið á fætur öðru. Marc Bernal skoraði af stuttu færi eftir magnaðan undirbúning frá Lamine Yamal í kjölfar stuttrar hornspyrnu á 29. mínútu.

Raphinha náði svo að bæta marki við seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu eftir augljóst brot innan vítateigs, svo staðan var 2-0 í hálfleik og 2-4 í heildarviðureigninni.

Atlético varðist betur í síðari hálfleik þar sem heimamenn í Barcelona áttu erfiðara með að skapa sér færi, en náðu þó að bæta marki við á 72. mínútu. Hinn bráðefnilegi Bernal var þar aftur á ferðinni eftir aðra stutta hornspyrnu, en í þetta skiptið skoraði hann eftir fyrirgjöf frá Joao Cancelo.

Börsungar lögðu allt í sóknarleikinn á lokakaflanum en vörn Atlético hélt vel, svo lokatölur urðu 3-0 á Camp Nou.

Mögnuð frammistaða hjá Barcelona dugði því ekki til, en lærlingar Hansi Flick geta gengið frá þessari viðureign berandi höfuðið hátt.

Atlético mætir annað hvort Real Sociedad eða Athletic Bilbao í úrslitaleik Konungsbikarsins.
Athugasemdir
banner
banner