Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   mið 04. mars 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Hélt krísufund með leikmönnum Real Madrid
Alvaro Arbeloa.
Alvaro Arbeloa.
Mynd: EPA
Real Madrid hefur verið í vandræðum með að finna stöðugleika í nokkurn tíma og hefur tapað síðustu tveimur deildarleikjum.

Meiðsli hafa ekki hjálpað liðinu en stjörnuleikmennirnir Kylian Mbappe og Jude Bellingham eru meðal manna sem voru fjarri góðu gamni í 1-0 tapinu gegn Getafe.

Alvaro Arbeloa tók við þegar Xabi Alonso var rekinn en samkvæmt spænskum fjölmiðlum eru stjórnendur Real Madrid að missa trú á því að hann sé rétti maðurinn til lengri tíma.

Cadena Cope segir að Arbeloa hafi haldið krísufund með leikmönnum eftir tapið gegn Getafe til að reyna að kalla fram viðbrögð og óskað eftir því að menn myndu spýta í lófana og leggja sig enn meira fram á lokakafla tímabilsins.

Real Madrid er fjórum stigum frá toppliði Barcelona þar sem El Clasico og einvígi gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eru meðal verkefna framundan.

Diario AS segir að bæði leikmenn og starfslið séu með efasemdir um að liðið geti snúið stöðunni við en kúltúrinn sem hefur skapast í búningsklefa liðsins hefur mikið verið til umfjöllunar.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 31 26 1 4 84 30 +54 79
2 Real Madrid 31 22 4 5 65 29 +36 70
3 Villarreal 31 19 4 8 56 36 +20 61
4 Atletico Madrid 31 17 6 8 51 32 +19 57
5 Betis 31 11 13 7 45 38 +7 46
6 Celta 31 11 11 9 44 40 +4 44
7 Real Sociedad 31 11 9 11 49 48 +1 42
8 Getafe 31 12 5 14 27 32 -5 41
9 Osasuna 31 10 9 12 37 38 -1 39
10 Espanyol 31 10 8 13 37 48 -11 38
11 Athletic 31 11 5 15 33 45 -12 38
12 Girona 31 9 11 11 33 45 -12 38
13 Vallecano 31 8 11 12 29 38 -9 35
14 Valencia 31 9 8 14 34 46 -12 35
15 Mallorca 31 9 7 15 39 48 -9 34
16 Sevilla 31 9 7 15 39 51 -12 34
17 Alaves 31 8 9 14 35 46 -11 33
18 Elche 31 7 11 13 39 47 -8 32
19 Levante 31 7 8 16 35 50 -15 29
20 Oviedo 31 6 9 16 24 48 -24 27
Slapp
banner
banner