Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   þri 03. mars 2026 17:32
Kári Snorrason
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Jóhannes skrifar undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana.
Jóhannes skrifar undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana.
Mynd: Víkingur R.
„Ég talaði við einhver önnur lið, en eins og þegar ég horfði á pakkann og allt sem honum fylgdi þá var þetta eiginlega engin spurning.“
„Ég talaði við einhver önnur lið, en eins og þegar ég horfði á pakkann og allt sem honum fylgdi þá var þetta eiginlega engin spurning.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes á 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.
Jóhannes á 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jóhannes Kristinn Bjarnason gekk í raðir Víkings í gær og skrifaði hann undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana.

Hann gengur til liðs við Víking frá danska B-deildarfélaginu Kolding en þangað var hann seldur frá uppeldisfélagi sínu KR síðasta sumar.

Fótbolti.net ræddi við Jóhannes í tilefni skiptanna.

Gekk ekki hjá Kolding
„Eftir að ég skoðaði þetta meira og meira þá fannst mér Víkingur vera rétta skrefið og það eina í stöðunni.

Þetta gekk ekki alveg eins og ég hafði viljað úti. Auðvitað var hægt að reyna áfram og keyra eitthvað á þetta. En síðan kemur svona tækifæri að koma í Víking að berjast um titla og spila vonandi í Evrópu sem heillaði mikið.“


Erfitt og skrítið að vera ekki í KR
Jóhannes er uppalinn hjá KR og fór ungur út til Norrköping í Svíþjóð en sneri svo aftur heim í Vesturbæinn. Hann lék vel með KR fyrri hluta síðasta tímabils og var seldur til Kolding í Danmörku síðasta sumar.

„Ég talaði við einhver önnur lið, en eins og þegar ég horfði á pakkann og allt sem honum fylgdi þá var þetta eiginlega engin spurning.

Auðvitað finnst mér þetta skrítið og erfitt en það er gaman að spila í Evrópu og keppast um titla, ekki það að ég sé að segja að KR geti ekki gert það, en þá er það aðallega það sem heillaði mig mest.“


Ekki slæmt að læra af Gylfa
„Þetta er geggjaður hópur með góða leikmenn. Það verður gaman að fá að spila með þeim og læra af þeim. Læra af mönnum eins og Gylfa er ekki slæmt. Víkin er geggjaður staður til að vera á.“

Hvað langar þig til að gera með Víkingi?
„Vinna titilinn og komast vonandi í Evrópu væri geggjað. Reyna að spila eins mikið og ég get á meðan við erum að ná þessum markmiðum.“

„Já, það er alltaf erfitt að fara frá atvinnumennskunni. Maður veit ekki hvort að maður fái annan séns. En ef að eitthvað rétt kemur þá er ég alltaf tilbúinn að skoða það og meira en tilbúinn að reyna við atvinnumennskuna aftur.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan
Slapp
banner