Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 14:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Iraola tekur ekki við Athletic Bilbao
Mynd: EPA
Andoni Iraola mun hætta sem stjóri Bournemouth eftir tímabilið en hann hefur verið orðaður við uppeldisfélagið sitt, Athletic Bilbao.

Það lítur ekki út fyrir að það verði að veruleika því spænskir fjölmiðlar greina frá því að Edin Terzic muni taka við af Ernesto Valverde sem mun yfirgefa Bilbao eftir tímabilið.

Terzic er fyrrum stjóri Dortmund en hann hefur ekki þjálfað síðan árið 2024. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í sjónvarpi í Þýskalandi.

Iraola er sagður vera efstur á óskalista Chelsea í sumar.
Slapp
banner
banner