„Tilhlökkunin er góð og þetta leggst vel í okkur þetta verkefni og við erum fullir tilhlökkunar að taka þrjú punkta á laugardaginn," sagði Ögmundur Kristinsson sem er einn af þremur markvörðum í landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Albaníu og Tyrklandi á laugardag og þriðjudag í næstu viku. Leikirnir eru liðir í undankeppni fyrir Evrópumótið næsta sumar.
Rúnar Alex einn af þremur markvörðunum er að glíma við meiðsli og fer í myndatöku í kvöld. Það eykur möguleikann á að Ögmundur spili. Ögmundur kemur inn í verkefnið með mikið sjálfstraust.
„Það hefur gengið mjög vel hjá mér. Það er erfitt að segja til um mína stöðu hjá landsliðinu. Maður verður bara að standa sig á æfingunum og gera sitt og vona síðan að þjálfarnir velji mann í byrjunarliðið. Það kemur bara í ljós á laugardaginn," sagði Ögmundur og bætir við.
„Auðvitað vill maður spila og þess vegna er maður hérna. Síðan verður maður bara að bíða og sjá hvað þjálfarnir gera."
„Þetta eru gríðarlega mikilvægir leikir. Það er mjög mikilvægt að ná í stig og halda okkur inn í keppninni þannig við verðum að taka sex punkta," sagði Ögmundur Kristinsson.
Viðtalið í heild sinni við Ögmund má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir





















