Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   fös 06. mars 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
Rosenior tjáir sig um óvænta markvarðarvalið
Filip Jörgensen lék í markinu gegn Villa.
Filip Jörgensen lék í markinu gegn Villa.
Mynd: EPA
Robert Sanchez.
Robert Sanchez.
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, var spurður út í markvarðarstöðuna á fréttamannafundi en Filip Jörgensen kom í markið í stað Robert Sanchez í leiknum gegn Aston Villa.

„Ég lít á markvarðarstöðuna kannski öðruvísi. Ég horfi á hvern leik fyrir sig. Venjan er að það sé valinn aðalmarkvörður en ég reyni að velja besta mögulega liðið fyrir hvern leik," segir Rosenior en Chelsea vann 4-1 endurkomusigur.

„Ég vil að það sé samkeppni um allar stöður. Filip hefur beðið eftir tækifærinu og hann nýtti það mjög vel. Hann hafði mikil áhrif og stóð sig vel. Rob hefur líka sýnt frábæra frammistöðu. Það er samkeppni þarna eins og í öðrum stöðum."

Hvernig brást Robert Sanchez við því að vera settur á bekkinn?

„Ég hef verið mjög hreinskilinn. Hann var mjög svekktur að spila ekki leikinn, sem ég býst við frá öllum leikmönnum. En hann brást á frábæran hátt við á æfingum og hefur sýnt Filip stuðning, í upphituninni og í klefanum," segir Rosenior.

Það er bikarhelgi á Englandi og Chelsea á leik gegn ævintýraliði Wrexham á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner